Hæfnihringir á netinu – stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni

Ert þú kona með rekstur (eða hyggur á rekstur) á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi, eða Vestfjörðum?

Hefurðu upplifað tíma þar sem þú stendur frammi fyrir áskorun eða verkefni og þyrftir helst að fá ráð frá einhverjum, sem hefur gengið í gegnum svipað?

Til stendur að bjóða upp á svokallaða hæfnihringi á netinu fyrir konur á áðurnefndum landssvæðum.

Hæfnihringir eru byggðir á aðferðarfræði, sem kallast aðgerðarnám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur til að komast yfir hindranir með því að a) styrkja hæfni og færni þeirra, b) veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar og c) að efla tengslanet þeirra. Hringjunum er stýrt af leiðbeinanda í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit.

 

•             Deildu þínum áskorunum, verkefnum og tækifærum með öðrum konum og fáðu ráðleggingar á jafningjagrundvelli.

•             Vertu í mátulega krefjandi en samt öruggu umhverfi þar sem hugmyndir geta verið reyndar og þróaðar.

•             Stækkaðu tengslanet þitt með konum, sem eru á svipuðum sporum og þú.

 

Fyrsti netfundurinn er þriðjudaginn 27. október kl. 14:30. Lagt er upp með 4-5 fundi með tveggja vikna millibili, hver fundur er ca 1,5 klst.

Hæfnihringirnir eru samstarfsverkefni nokkurra landshlutasamtaka/atvinnuþróunarfélaga, en auk okkar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, koma kollegar okkar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Austurbrú, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Vestfjarðarstofu að verkefninu. 

 

Skráning á hér en nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi SSNV, á sveinbjorg@ssnv.is