Fundargerð úthlutunarnefndar 29. september 2020

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar 

 

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra

Fundargerð

 

24. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn þriðjudaginn 29. sept. 2020, kl. 13:00. Fundurinn er símafundur.

Mætt til fundar:  Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Sigríður Svavarsdóttir, Þorsteinn Jóhannes Guðmundsson, Jóhanna Ey Harðardóttir og Adolf H. Berndsen. Einnig sátu fundinn Sveinbjörg Rut Pétursdóttir og Ingibergur Guðmundsson, starfsmenn SSNV. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Fyrir var tekið:

 

1.      Drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2021.

Fyrir fundinum lágu drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2021. Farið var yfir drögin en þau svo samþykkt með áorðnum breytingum.

Reglurnar þurfa staðfestingu stjórnar SSNV áður en þær taka gildi.

 

2.      Drög að matsblaði umsókna fyrir árið 2021.

Fyrir fundinum lágu drög að matsblaði vegna umsókna um styrk 2021. Drögin voru samþykkt óbreytt.

Matsblaðið þarf samþykki stjórnar SSNV áður en það tekur gildi.

 

3.      Tímasetningar umsóknar- og úthlutunarferils vegna styrkveitinga f. 2021.

Samþykkt var að miða við eftirfarandi dagsetningar:

-            9. október 2020     - auglýst eftir umsóknum

-          16. nóvember 2020 - umsóknarfrestur rennur út

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:15.

 

Ingibergur Guðmundsson

fundarritari