Fundargerð Úthlutunarnefndar 26.05.2015

Fundur haldinn í Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra þriðjudaginn 26. maí, kl. 16:00, á skrifstofu SSNV á Sauðárkróki.
Mætt: Stefán Vagn Stefánsson, formaður, Jóhanna Magnúsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Leó Örn Þorleifsson, Sólveig Olga Sigurðardóttir og Sveinbjörg Pétursdóttir, starfsmenn SSNV, Sveinbjörg ritar fundargerð. Ingileif Oddsdóttir boðaði forföll.

Dagskrá:

1. Vanhæfi nefndarmanna við afgreiðslu einstakra umsókna
Farið var yfir stjórnsýslu- og sveitarstjórnarlög um vanhæfi við umræðu og afgreiðslu einstakra umsókna, einnig við hvaða umsóknir nefndarmenn væru vanhæfir. Þeir nefndarmenn, sem vanhæfir voru, viku síðan af fundi á meðan viðkomandi umsókn var rædd og afgreidd.
Vanhæfi:
Stefán Vagn nr. 30.


2. Ákvörðun um styrkveitingar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
Alls bárust 30 umsóknir um verkefnastyrki. Fyrir fundinum lá tillaga frá Fagráði atvinnuþróunar og nýsköpunar um úthlutun styrkja. Úthlutunarnefndin fór yfir umsóknirnar og ræddi þær.
Samþykkt að styrkja 14 umsækjendur um samtals 30.000.000 kr.

3. Úthlutunarhátíð
Tekin ákvörðun um að halda úthlutunarhátíð 11. júní 2015 kl. 17:00 á Blönduósi.

4. Önnur mál

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17.40.
Sveinbjörg Pétursdóttir

Hér má nálgast fundargerð á PDF.