Fundargerð úthlutunarnefndar 10.03.2016

 Hér má nálgast fundargerðina á pdf formi 

 

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra

 

Fundargerð  

4. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn fimmtudaginn 10.mars 2016, kl. 13:00, að Einbúastíg 2 á Skagaströnd.

Mætt til fundar:  Stefán Vagn Stefánsson, formaður, Jóhanna Magnúsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Leó Örn Þorleifsson, Ingileif Oddsdóttir og  Sólveig Olga Sigurðardóttir, starfsmaður SSNV, sem ritaði fundargerð.

Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Dagskrá:

1.    Vanhæfi nefndarmanna við afgreiðslu einstakra umsókna

Farið var yfir stjórnsýslu- og sveitarstjórnarlög um vanhæfi við umræðu og afgreiðslu einstakra umsókna, einnig við hvaða umsóknir nefndarmenn væru vanhæfir. Þeir nefndarmenn, sem vanhæfir voru, viku síðan af fundi á meðan viðkomandi umsókn var rædd og afgreidd.

Vanhæfi                                     Umsókn nr. 

 

Stefán Vagn Stefánsson         16024, 16025, 16036, 16038, 16040

Ingileif Oddsdóttir                    16006, 16007, 16028       

Jóhanna Magnúsdóttir           16037

 

2.    Ákvörðun um styrkveitingar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar

Fyrir fundinum lá tillaga frá Fagráði atvinnuþróunar og nýsköpunar um úthlutun styrkja. Úthlutunarnefndin fór yfir umsóknirnar og ræddi þær.

Samþykkt að styrkja 25 umsækjendur um samtals 33.000.000 kr.

 

3.    Úthlutunarhátíð – ákvörðun um stað og stund

Ákveðið að halda úthlutunarhátíð sem fyrst eftir páska. Starfsmenn SSNV koma með tillögur að stað og stund.

4.    Önnur mál

Engin.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 15:30

Sólveig Olga Sigurðardóttir