Fundargerð stjórnar 08.02.2016

 Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar

 

Fundargerð 3. Ár 2016.

Mánudaginn 08. febrúar kom stjórn SSNV saman til fundar á Blönduósi og hófst fundurinn kl. 09:30.

Mætt til fundar: Adolf H. Berndsen, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Valgarður Hilmarsson, Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Björn Líndal Traustason framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Adolf H. Berndsen formaður setti fundinn og stjórnaði honum.

Dagskrá:

  1. Skýrsla Magnúsar Bjarna Baldurssonar um Markaðs- og kynningarátak
  2. Önnur mál 

Afgreiðsla mála:

  1. Skýrsla Magnúsar Bjarna Baldurssonar um markaðs- og kynningarátak

Fundur um kynningar- og markaðsátak var haldinn í Dæli þann 28. janúar 2016. Til fundarins voru boðuð stjórn SSNV, starfsmenn auk eins fulltrúa frá hverju aðildarsveitarfélagi SSNV. Magnús Bjarni Baldursson sérfræðingur í markaðsmálum leiddi umræður fundarins.

Markmið fundarins var að fá fram hugmyndir fundarmanna um þær áherslur sem leggja skuli áherslu á í markaðs- og kynningarátaki sem ákveðið var að ráðast í á ársþingi SSNV þann 15.10.2015. 

Skýrsla Magnúsar rædd og formanni og framkvæmdastjóra falið að móta verkefnið frekar ásamt Magnúsi Bjarna.

  1. Önnur mál.

a. Erindi frá Innanríkisráðuneytinu.

Óskað er eftir tilnefningu eins fulltrúa frá SSNV í bakhóp, starfshóps sem Innanríkisráðherra hefur skipað sem á að vinna að stefnumótun og aðgerðaráætlun í sveitarstjórnarmálum undir heitinu „Staða og framtíð íslenskra sveitarfélaga“. Megin markmið verkefnisins skv. verkefnaáætlun eru að leggja fram tilögur sem stuðla að;

  • stærri, öflugri og sjálfbærum sveitarfélögum
    • breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga,
    • markvissari samskiptum ríkis og sveitarfélaga,
    • nýtingu rafrænnar tækni við stjórnsýslu og
    • lýðræðislegri þátttaka íbúa í stefnumörkun og ákvarðanatöku á öllum sviðum.

Stjórn SSNV tilnefnir Valgarð Hilmarsson í bakhópinn 

 

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 10:20.

 

Adolf H. Berndsen (sign.)

Unnur V. Hilmarsdóttir (sign.)

Valgarður Hilmarsson (sign.)

Sigríður Svavarsdóttir (sign.)

Stefán Vagn Stefánsson (sign.)

Björn Líndal Traustason (sign.)