Framleiðnisjóður Landbúnaðarins kallar eftir umsóknum í lokaúthlutun sjóðsins

Stjórnvöld hafa ákveðið að Framleiðnisjóður verði lagður niður í lok árs 2020. Stjórnendur Framleiðnisjóðs hafa ákveðið að síðasta úthlutun sjóðsins beinist að grasrótarstarfi bænda og viðleitni þeirra til eflingar atvinnu í sveitum og kallar eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar á lögbýlum. Nánari upplýsingar um styrkhæfi verkefna má finna undir flipanum „UM SJÓÐINN“ í kafla 2. B. Bændur/ábúendur lögbýla á heimasíðu sjóðsins. Þá eru viðeigandi umsóknareyðublöð undir flipanum „EYÐUBLÖÐ.“ Annars vegar skjal með sjálfu eyðublaðinu (umsókn um framlag til nýsköpunar og þróunar á bújörðum B-form)) og hins vegar skjal fyrir greinargerð sem fylgja skal umsókn (greinargerð með umsókn B-flokkur).

Umsóknum skal skila rafrænt í síðasta lagi 30. október (sendingartími gildir) á netfangið fl@fl.is. Auk þess skal senda umsóknirnar útprentaðar og undirritaðar með hefðbundnum pósti. Sigríður framkvæmdastjóri FL veitir allar nánari upplýsingar (sími 430-4300 / netfangið sigridur@fl.is).

Atvinnuráðgjafar SSNV veita aðstoð við gerð umsókna.