ER STYRKUR Í ÞÉR?

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð og Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Norðurlands vestra fyrir árið 2018. Sækja þarf um rafrænt á heimasíðu SSNV með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember nk.

 

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra

  •  Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
  •  Verkefnastyrkir til menningarstarfs
  •  Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs

 

Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Norðurlands vestra

  •  Styrkir til nýsköpunar og atvinnuþróunar fyrir 35 ára og yngri

Hægt er að fara inn á umsóknarvefinn með því að smella hér.