Fundargerð úthlutunarnefndar 24. nóvember 2020

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.

 

 

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra

Fundargerð

 

25. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn þriðjudaginn 24. nóvember 2020, kl. 10:00, að Einbúastíg 2 á Skagaströnd.

Mætt til fundar:  Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Jóhanna Ey Harðardóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar og Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður fagráðs menningar.

Einnig sátu fundinn Ingibergur Guðmundsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, starfsmenn SSNV.

Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Dagskrá:

1.       Starfsreglur úthlutunarnefndar

Farið var yfir starfsreglur nefndarinnar.

 

2.       Úthlutunarreglur og matsblað f. 2021

Farið yfir matsblað og úthlutunarreglur f. 2021

 

3.       Hæfi/vanhæfi fulltrúa í úthlutunarnefnd

Farið yfir gögn um hæfi og vanhæfi.

 

4.       Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra – umsóknir 2020

Alls bárust 123 umsóknir um styrki þar sem beðið var um 228 millj. kr. Til úthlutunar eru 74-75 millj. kr.

Nefndin fór yfir umsóknirnar og athugaði hvort öllum formskilyrðum væri fullnægt. Niðurstaðan var sem hér segir:

Umsóknir nr. 21029, 21077, 21083, 21107, 21120. Umsóknum vísað frá þar sem umsækjandi er ekki með lögheimili á Norðurlandi vestra, sbr. gr. 7 í úthlutunarreglum sjóðsins f. 2021.

Umsóknir nr. 21002, 21055, 21062, 21075, 21076, 21079, 21100, 21113, 21116, 21118.  Umsóknum vísað frá þar sem staðfestingar skráðra samstarfsaðila bárust ekki, sbr. gr. 9 í úthlutunarreglum sjóðsins f. 2021.

Umsóknir nr. 21021, 21034, 21040, 21084.  Umsóknir eru á ensku en stutta greinargerð vantar, sbr. gr. 9 í úthlutunarreglum sjóðsins f. 2021.

Að því loknu var öðrum umsóknum vísað til umfjöllunar í viðkomandi fagráði.

Nefndin beinir því til fagráðs menningar að miða við 17-18 millj. kr. í stofn- og rekstrarstyrki.

 

5.       Verkferlar við mat á umsóknum

Farið yfir verkferla fagráða við mat á umsóknum.

 

6.       Dagsetningar næstu funda

Samþykkt að næsti fundur úthlutunarnefndar verði fimmtudaginn 17. desember 2020, kl. 10:00, á Skagaströnd.

 

  1. 7.       Önnur mál

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.35.

 

Ingibergur Guðmundsson, fundarritari