Verum snjöll – átak fyrir jólin

SSNV stendur í ár líkt og í fyrra fyrir átaki fyrir jólin sem miðar að því að hvetja íbúa á Norðurlandi vestra til að versla í heimabyggð. Næstu vikur verða birtar áminningar í svæðismiðlunum undir slagorðunum, Verum snjöll – verslum heima.

 

Desembermánuður er mikill verslunarmánuður og mikið í húfi fyrir samfélögin á svæðinu að sem mest af þeirri verslun eigi sér stað heima í héraði. Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV bendir á hversu mikið er í húfi í grein á Feyki. https://www.feykir.is/is/frettir/verum-snjoll-verslum-heima