Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra - Er styrkur í þér?

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 20. nóvember 2019.

Veittir eru styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir til menningarstarfs og stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt á heimasíðu SSNV. Smellt er á logo Sóknaráætlunar á forsíðu heimasíðunnar til að komast á umsóknargátt. Frekar leiðbeiningar má nálgast hér.

 Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma á neðangreindum stöðum þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.

 

Þriðjudagur 5. nóvember 

Kl. 10-12  Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2, Skagaströnd

Kl. 13-16  Kvennaskólinn, Árbraut 31, Blönduósi

 

Miðvikudagur 6. nóvember

Kl. 13-16  Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6, Hvammstanga

 

Föstudagur 8. nóvember

Kl. 10-12  Hótel Varmahlíð

Kl. 10-12  Vesturfarasetrið, Frændgarður, Hofsósi

Kl. 13-17  Skrifstofa SSNV, Faxatorgi, Sauðárkróki