Tækifæri í fjárfestingu í atvinnulífi á Norðurlandi

Kynningarfundur með fjárfestingafélaginu Tækifæri hf. verða haldnir miðvikudaginn 11. mai n.k.

- klukkan 12  í Eyvindarstofu á Blönduósi 
(boðið verður upp á súpu og brauð)

- klukkan 15  í Hlöðunni á Hvammstanga  (boðið verður upp á kaffi og með því)

 Á fundunum mun Jón Steindór Árnason framkvæmdastjóri Tækifæris kynna starfsemi félagsins og fjárfestingar, auk þess að fara yfir möguleika í nýjum fjárfestingum.

 Tækifæri hf. er fjárfestingafélag sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi.  Félagið var stofnað árið 1999 og hefur fjárfest í yfir 50 fyrirtækjum á starfstíma sínum.  Tilgangur með starfsemi þess er að taka þátt í stofnun og starfsemi fyrirtækja sem rekin eru á grundvelli arðsemisjónarmiða, fela í sér nýmæli í atvinnulífinu og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á starfssvæði félagsins.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta.