Sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi vestra 2018-2022

Á fundi stjórnar SSNV þann 10. Júlí 2018 lagði framkvæmdastjóri fram lista yfir nýkjörna aðalmenn í  sveitarstjórnum á starfssvæði SSNV. Samkvæmt honum eru konur nú 47% sveitarstjórnarfulltrúa  samanborið við 38% á síðasta kjörtímabili. Hlutfall kvenna í sveitarstjórnum á landsvísu er 47%.

Heildarfjöldi kjörinna aðalmanna í sveitarfélögum á starfssvæðinu er 45.

Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um nýliðun í sveitarstjórnum og því áhugavert að skoða það

hlutfall nú og bera saman við síðasta kjörtímabil. Nýliðar í sveitarstjórnum á Norðurlandi vestra eru

nú 67% samanborið við 51% á síðasta kjörtímabili. Með nýliðum er átt við fulltrúa sem ekki sátu kjörtímabilið

á undan en í þeim hópi eru einhverjir sem eru að koma inn í sveitarstjórnir að nýju eftir hlé í eitt  kjörtímabil eða meira. Athyglisvert er að nýliðun í sveitarstjórnum á Norðurlandi vestra er nokkuð hærri en á landsvísu en meðaltal nýliðunar á landinu öllu er 58,4%. 

Á sama fundi stjórnar SSNV samþykkti stjórn að færa kjörnum aðalfulltrúum á starfssvæðinu bókina Sveitarstjórnarrétt

eftir Trausta Fannar Valsson  að gjöf og hefur hún nú verið afhent sveitarstjórnarfulltrúum á starfssvæðinu. 

Starfsmenn SSNV óska nýkjörnum sveitarstjórnarmönnun velfarnaðar í starfi og hlakka til samstarfsins  á kjörtímabilinu.