Svanni - lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum um ábyrgðartryggingar

Svanni veitir ábyrgðartryggingar til fyrirtækja í eigu kvenna en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu.

Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu.

Gerð er krafa um að verkefnið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.

Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:

  • Markaðskostnaðar
  • Vöruþróunar
  • Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.

Lán skal að jafnaði ekki fara yfir 10 milljónir króna.

Með umsókn skal skila eftirfarandi gögnum:

  • Viðskiptaáætlun
  • Fjárhagsáætlun
  • Endurgreiðsluáætlun
  • Staðfestingu á eignarhaldi fyrirtækis

Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs má finna á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is og er umsóknarfrestur til og með 7. nóvember næstkomandi.

Mögulegt er að sækja um lán og lánatrygginu árið um kring en úthlutanir eru að hausti og að vori.

Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins í síma 531-7080 eða á netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is