Spjallað um landbúnað

Dagana 1. – 5. Febrúar ætlum við að efna til spjalls um landbúnað á facebook síðu okkar. Við fáum til okkar viðmælendur sem hafa ýmislegt til málanna að leggja hvað landbúnað varðar og eigum við þá hálftíma spjall um þennan málaflokk sem er okkur á Norðurlandi vestra svo mikilvægur. Dagskráin er eftirfarandi:

 

1. febrúar - Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og sérfræðingur í tollamálum
2. febrúar - Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST
3. febrúar - Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðarráðherra
4. febrúar - Hólmfríður Sveinsdóttir, ráðgjafi
5. febrúar - Þrír frumkvöðlar í vinnslu landbúnaðarafurða, Hildur Þóra Magnúsdóttir frá Pure Natura, Pétur Pétursson frá Jöklavíni og Þórhildur M. Jónsdóttir formaður Félags smáframleiðenda og verkefnisstjóri Vörusmiðju Biopol.

 

Samtalið hefst kl. 11.30 alla dagana og mun standa í 30 mínútur.

 

Bjóðum áhugasömum að senda inn spurningar til viðmælenda í með því að senda póst á  ssnv@ssnv.is, eða með því að setja inn spurningar í umræðuþráðinn á viðburðinum á facebook. Þær spurningar sem berast verða bornar upp í spjallinu.