Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna verslunar í strjálbýli

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna verslunar í strjálbýli, sbr. aðgerð A.9 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið með aðgerðinni er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustukjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin geta nýst til að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, m.a. með samspili við aðra þjónustu, breyttri uppsetningu í verslunum og bættri aðkomu. Ráðgert er að styðja 3-4 verkefni. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 19. nóvember 2018.

Verslunarrekendur eða þeir sem hyggja á verslunarrekstur á skilgreindum svæðum geta sótt um þau framlög sem auglýst eru. Verslanirnar þurfa að vera í a.m.k. 150 km akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, 75 km akstursfjarlægð frá Akureyri og 40 km akstursfjarlægð frá byggðakjörnum með yfir 1.000 íbúa, eða í Grímsey og Hrísey. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Við mat á umsóknum verður meðal annars stuðst við rekstraráætlun fyrir árið 2019, ársreikninga síðustu tveggja ára og fyrirhugaða starfsemi.

 

Sjá nánar hér.