Opið fyrir umsóknir í Tónlistarsjóð

Hvert er markmiðið?

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess skv. lögum nr. 76/2004 og reglum um Tónlistarsjóðs nr. 125/2005 .

Hverjir geta sótt um?

Aðstandendur tónlistarverkefna geta sótt um styrk.

Hvað er styrkt?

Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til kynningar og markaðsetningar á tónlist og tónlistarfólki. Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn. Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.

 

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins.