Nýr gagnagrunnur um menningarmál

SSNV og Eyþing hafa í sameiningu tekið í notkun yfirgripsmikinn gagnagrunn um menningartengda þjónustu á Norðurlandi. Verkefnið hefur hlotið nafnið Menningarbrunnur en það hlaut styrk úr Sóknaráætlunum Norðurlands eystra og vestra sem áhersluverkefni.

 

Menningarbrunnur - Gagnagrunnur um menningartengda þjónustu á Norðurlandi mun verða aðgengilegur á heimasíðum Eyþings, SSNV og fleiri aðila. Skráning í grunninn er aðilum að kostnaðarlausu en skráning og viðhald upplýsinga verður í höndum Eyþings og SSNV. Í gagnagrunninum verður að finna upplýsingar um:

  • hátíðir
  • húsnæði
  • hönnunarhús/gallerí
  • menningarstofnanir/félög
  • svæðisbundna fjölmiðla
  • söfn/setur
  • tónlist
  • útilistaverk
  • vinnustofur listamanna. 

Frekari upplýsingar um gagnagrunninn veita Ingibergur Guðmundsson verkefnastjóri hjá SSNV,  ingibergur@ssnv.is, og Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri menningarmála hjá Eyþingi, vigdis@eything.is.