Metfjöldi umsókna í Uppbyggingarsjóð

Frestur til að sækja um í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra fyrir árið 2021 rann út 16. nóv. sl. Alls bárust 123 umsóknir þar sem óskað var eftir samtals 228 millj. kr. Til úthlutunar eru rúmar 70 millj. kr. 

Þetta eru nokkru fleiri umsóknir en undanfarin ár og aldrei hafa borist fleiri umsóknir í atvinnuþróunar- og nýsköpunarhluta sjóðsins. 

Nú fer í hönd yfirferð umsókna hjá úthlutunarnefnd og fagráðum Uppbyggingarsjóðs. Stefnt er að því að svör berist umsækjendum fyrir næstu áramót.