Mannamót

Markaðsstofur landshlutanna setja upp stefnumótið MANNAMÓT í Reykjavík 19. janúar 2017 frá kl. 12.00 - 17.00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.

UM MANNAMÓT: Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá.

FYRIR HVERJA? MANNAMÓT er kjörinn vettvangur fyrir aðila í ferðaþjónustu að koma og kynna sér þá fjölbreytni í þjónustu sem er í boði á landsbyggðinni. Því er Mannamót sérstaklega áhugaverður vettvangur fyrir m.a.: • Starfsfólk ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda • Starfsfólk upplýsinga- og bókunarmiðstöðva  • Leiðsögumenn • Nemendur í leiðsögunámi og ferðamálafræðum ásamt kennurum í ferðamálagreinum • Starfsfólk í þjónustuverum flugfélaga  • Sölu- og kynningarfólk flugfélaga  • Starfsfólk í mótttökum hótela og gistihúsa  • Fjölmiðlar

FYRIR SÝNENDUR: Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamóti 2017. Skráningu lýkur 12. janúar 2017.  Upplýsingar og skráning fyrir sýnendur er inn á www.markadsstofur.is

Skráning gesta fer fram hér: http://www.markadsstofur.is/is/skraninggesta