Lumar þú á mjúkri og hlýrri hugmynd?

Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda Ullarþon daganna 25. - 29. mars nk. Ullarþon er nýsköpunarkeppni haldin á netinu til að ýta undir nýsköpun og vöruþróun, auka verðmæti íslensku ullarinnar og þá sérstaklega verðminnstu ullarflokkanna. Verkefnið er styrkt af Framleiðnisjóði Landbúnaðarins. 

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

1. Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull
2. Blöndun annarra hráefna við ull
3. Ný afurð
4. Stafrænar lausnir og sjálfbærni

Allir áhugasamir eru hvattir til að taka þátt. Skráning hefst 1. mars. Hægt er að taka þátt hvort heldur sem einstaklingur eða í teymi. Þátttakendur hafa aðgang að breiðum hóp leiðbeinenda á meðan Ullarþoninu stendur. Heppilegt er að fólk með ólíka kunnáttu vinni saman til að auka möguleika á lausnum! 

Lokaskil á hugmyndum er þann 29. mars. Dómnefnd mun þá meta hugmyndir og tilkynna um miðjan apríl hver mun vera í topp 5 í hverjum flokki. Úrslit verða kynnt á Hönnunarmars 2021. Heildarverðmæti vinninga eru um 1.600.000 kr. 

Nú er tækifæri til að láta ljós sitt skína og taka þátt í að koma með nýjar nýskapandi lausnir sem hægt verður að nýta sem best og þar með skapa verðmæti úr ullinni!

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á Facebookarsíðu “Ullarþon” og á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar.