Kennimerki fyrir fyrirtæki á Norðurlandi vestra

Á árinu 2016 var hrundið af stað átaki í markaðs- og kynningarmálum innan SSNV. Einnig hefur verkefni í tengslum við sóknaráætlun Norðurlands vestra verið í gangi sem hefur það markmið að aðstoða frumkvöðla og sprotafyrirtæki með markaðsmál. Hluti af markaðs- og kynningarátakinu var að láta hanna kennimerki sem fyrirtæki á Norðurlandi vestra geta nýtt sér í sinni markaðssetningu, kennimerki sem gefur til kynna hvar á landinu viðkomandi fyrirtæki er staðsett. Áhugasamir geta sótt sér kennimerkið hér á heimasíðu SSNV, en það er bæði með íslenskum og enskum texta. Sé þörf á betri upplausn er hægt að óska eftir að fá kennimerkið sent í tölvupósti með því að hafa samband við Sveinbjörgu á sveinbjorg@ssnv.is.

 

Kennimerkið var hannað af Nataliu Grociak en hún er grafískur hönnuður og vöruhönnuður með búsetu í Húnaþingi vestra. Hægt er að sjá frekari upplýsingar um hönnuðinn og verkefni sem hún hefur staðið að á vefsvæði hennar.