Hefurðu áhuga á að virkja lækinn þinn? Smávirkjanasjóður SSNV

Tilgangur sjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Miðað er við fyrirliggjandi yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem upp eru taldir í skýrslu Mannvits 2018: Frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra. Þó er heimilt að bæta við fleiri virkjunarkostum með samþykki SSNV.

Sjóðurinn veitir styrki til annars vegar: Skref 1: Frummat smávirkjana og hins vegar: Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummati hönnunar og byggingarkostnaðar.

Öll gögn varðandi umsóknarferlið og skýrsla Mannvits er að finna á heimasíðu SSNV: www.ssnv.is

 

Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018. Verkefninu verður lokið fyrir 31. maí 2019. Hámarksfjöldi verkefna sem styrkt verða er 8.

Auglýst verður eftir umsóknum í Skref 2 í júní 2019. 

 

Samið hefur verið við Verkfræðistofuna Mannvit um úttekt á þeim virkjunarkostum sem styrktir verða og sér SSNV um samningsgerð við fyrirtækið. 

Mótframlag umsækjanda er 100.000 kr. en SSNV greiðir annan kostnað við úttektina.  Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is.  Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, ingibergur@ssnv.is, s. 892 3080.

 

 

Sjá nánar hér.