Hacking Norðurland - Opnað hefur verið fyrir skráningar

Nýsköpunarviðburðurinn Hacking Norðurland fer fram dagana 15. - 18. apríl og er ætlað að virkja skapandi og lausnamiðaða hugsun og styðja við nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu. Unnið verður með sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins með tilliti til matar, vatns og orku. Markmiðið er einnig að draga fram í sviðsljósið öflugt frumkvöðlastarf á svæðinu og tengja saman frumkvöðlasenurnar í dreifbýli og þéttbýli á Íslandi.

Hefur þig dreymt um að vera frumkvöðull? Nú er tækifærið! Skráning fer fram hér

Norðurland er stórt svæði og til að tryggja að allir áhugasamir geti tekið þátt, hvar sem þeir eru staðsettir fer lausnamótið fram sem “tvinn-viðburður”. Lausnamótið hefst 15. apríl með opnunarviðburði og vefstofu þar sem rætt verður um þau tækifæri sem felast í auðlindum svæðisins. Föstudaginn 16. apríl hefst svo lausnamótið sjálft sem stendur í 48 klukkustundir og fer að stærstum hluta til fram í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafrænn vettvangur til samsköpunar, þróaður af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Samstarfsteymi Hacking Norðurland mun ferðast á milli frumkvöðlasetra á svæðinu meðan á lausnamótinu stendur og geta þátttakendur nærri þeim setrum nýtt sér möguleikann á því að vinna að hugmyndum sínum þar. Útkoman úr lausnamótinu getur verið stafræn lausn, vara, þjónusta, verkefni, hugbúnaður, vélbúnaður eða markaðsherferð. Hacking Norðurland lýkur sunnudaginn 18. apríl með lokaviðburði þar sem dómnefnd velur þrjú bestu verkefnin sem hljóta peningaverðlaun auk aukavinninga.

Hacking Norðurland er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Eims, SSNV, SSNE, Nýsköpunar í Norðri og Nordic Food in Tourism. Verkefnið er styrkt af Íslandsbanka.