Gríptu boltann!

Framleiðnisjóður Landbúnaðarins og Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins standa í ágúst mánuði fyrir fundaherferð með það að markmiði að hvetja til nýsköpunar í sveitum.

Aðalfyrirlesari fundanna er Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta og mun hann flytja erindi sem ber nafnið leiðin til sigurs. Erindið fjallar um árangursríka markmiðasetningu og hvað þarf til að ná framúrskarandi árangri. Fjallað er um uppbyggingu liðsheildar, samskipti og innleiðingu breytinga.

Að auki verða fengnir til leiks reynsluboltar í sölu vöru og þjónustu beint frá býli, sem munu miðla af reynslu sinni varðandi þróun og markaðssetningu. 

Þá verður erindi frá ráðunautum RML varðandi ýmsa sjóði sem hægt er að sækja styrki í, ásamt því hvernig umsóknarferlið fer fram.

 

22. ágúst kl. 20:00 Húnavatnssýslur - félagsheimilið Víðihlíð

23. ágúst kl. 13:00 Strandasýsla - Sauðfjársetrið Ströndum

24. ágúst kl. 13:00 Dalasýsla - Dalabúð

28. ágúst kl. 13:00 Skagafjarðarsýsla - félagsheimilið Hofsósi

 

Fundirnir verða öllum opnir og eru sem flestir hvattir til að mæta.