Fjölsóttur samráðsfundur vegna vinnu við gerð nýrrar fjarskiptaáætluna

Allar fundamyndir í dag eru af tölvuskjá, hér má sjá hluta fundarmanna.
Allar fundamyndir í dag eru af tölvuskjá, hér má sjá hluta fundarmanna.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið stóð í dag (13. Apríl 2021) fyrir samráðsfundi um fjarskiptamál í samvinnu við SSNV. Fundurinn var liður í vinnu ráðuneytisins við gerð hvítbókar um fjarskiptamál í tengslum við nýja fjarskiptaáætlun sem nú er í vinnslu. Á fundinum fór Ottó Winther verkefnisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir vinnuferli fjarskiptaáætlunar, Jón Björn Hákonarson formaður fjarskiptaráðs fjallaði um þann árangur sem náðst hefur í fjarskiptamálum síðustu ár og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir.  Jafnramt héldu erindi þau Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir Sveitarstjóri í Húnaþingi vestra og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar. Ragnheiður Jóna fjallaði um þær aðstæður sem sköpuðust í fjarskiptamálum í óveðrinu í desember 2019 og mikilvægi þess að úrbætur verði gerðar svo viðlíka aðstæður skapist ekki í framtíðinni. Sigfús Ingi fjallaði um þróun háhraðatenginga, verkefnið Ísland ljóstengt og þau verkefni sem enn standa eftir með tilliti til ljósleiðaravæðingar í sveitarfélaginu.  Í kjölfar erinda var fundarmönnum skipt upp í vinnuhópa þar sem fjallað var um  nýlegar aðgerðir sem hafa haft góð/jákvæð áhrif í landshlutanum, helstu áskoranir í fjarskiptamálum innan landsvæðisins og hvaða tækifæri er til framfara. Niðurstöður umræðna hópanna verða innlegg inn í vinnu við gerð fjarskiptaáætlunar.

 

Fundurinn var fjölsóttur og sköpuðust á honum góðar umræður um stöðu fjarskiptamála í héraðinu og þau brýnu verkefni sem þar standa fyrir dyrum. Ljóst er að áhugi á málaflokknum er mikill enda hefur mikilvægi fjarskipta og gangatenginga aukist harðbyri undanfarin ár.