Ertu frumkvöðlakona? Áttu fyrirtæki? Ertu með hugmynd? Eða langar þig bara að efla tengslanetið? Vertu með!

Evrópuverkefnið Efling kvenfrumkvöðla á landsbyggðinni eða Female Rural Enterprise Empowerment (FREE) efnir til lokaráðstefnu í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki þann 18. apríl n.k.    

Kveikjan að Evrópuverkefninu FREE var að rannsóknir sýndu að frumkvöðlakonur á landsbyggðinni hafa oft ekki tök á því að ferðast um langan veg til að taka þátt í námskeiðum eða fundum um stofnun og rekstur fyrirtækja. Þær vilja hafa aðgang að fræðslu og gagnlegu efni í gegnum netið en auk þess eru tengslanet oft á tíðum ekki eins öflug og á þéttbýlli svæðum.

Verkefnið er samstarfsverkefni sex aðila frá fimm löndum, en auk Vinnumálastofnunar, sem leiðir verkefnið,  tekur Byggðastofnun þátt ásamt aðilum frá Bretlandi, Búlgaríu, Króatíu og Litháen. Boðið var upp á fræðsluefni á netinu, þrjú tengslanet voru stofnuð á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og á Austurlandi og frumkvöðlakonum var boðið upp á að taka þátt í jafningjafræðslu á netinu þar sem rætt var um áskoranir og reynslu deilt.

Sjá má nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins http://ruralwomeninbusiness.eu/

 

Dagskrá

11.30-12.30

Húsið opnar og boðið upp á hressingu. Kynning á fyrirtækjum í eigu kvenna.

12.30-14.00

Kynning á Free verkefninu og árangri þess, upplifun þátttakenda í hæfnihringjum og í tengslaneti.

14.00-14.50

Vinnustofur – skráning nauðsynleg (sjá nánari lýsingu hér að neðan).

 

Hönnunarhugsun í fyrirtækjarekstri - Farið verður yfir helstu þætti hönnunarhusunar og þátttakendur gera stutt verkefni til að fá innsýn í gildi hennar og framkvæmd.

 

Stefnumótun - Um er að ræða gagnvirka vinnustofu þar sem þátttakendur læra um stefnumótun í gegnum skemmtilegan leik.

 

Markaðssetning á samfélagsmiðlum – Þátttakendur gera stutt verkefni til að öðlast betri skilning á mikilvægi vel heppnaðar markaðssetningar á samfélagsmiðlum.

15.00-16.00           

Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, leiðir þátttakendur  ,,Fram í sviðsljósið“  Hagnýtur fyrirlestur um að koma sér/vöru/hugmynd á framfæri, standa með sér og nýta tækifærið vel.

 

Sirrý fjallar á hagnýtan hátt um það að standa með sér, beinn í baki með sjálfstraustið í lagi, nýta sér kvíðann og koma málinu í höfn. Hvernig á að undirbúa óundirbúna ræðu, halda flotta kynningu, skapa tengslanet og þora að skína.

16.00

Ráðstefnuslit

 

 

Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna, smelltu hér:

https://www.eventbrite.com/e/lokarastefna-free-efling-frumkvolakvenna-a-landsbygginni-tickets-42494518248

   

Dagskrá örfyrirlestra:

Hönnunarhugsun í fyrirtækjarekstri 

Með hönnunarhugsun er á skapandi hátt notast við hugsun og aðferðir til að nálgast verkefni, safna saman upplýsingum og spyrja gagnrýnna spurninga til að leita að nýrri eða betri lausn.
Farið verður yfir helstu þætti hönnunarhusunar og þátttakendur gera stutt verkefni til að fá innsýn í gildi hennar og framkvæmd.

Umsjón: Elfa Hlín Pétursdóttir verkefnastjóri hjá Austurbrú.

 

Stefnumótun

Um er að ræða gagnvirka vinnustofu þar sem þátttakendur læra um stefnumótun í gegnum leik. Hann snýst um að búa til vöru (kassa) sem þarf síðan að selja á markaði.  Þátttakendur þurfa síðan að huga að þáttum eins og leiðtogafærni, áhættu, teymisvinnu og hvernig á að verðleggja hluti. Vinnustofan verður haldin á ensku en þýdd á íslensku.

Umsjón; Marina Larios, Inova og Ásdís Guðmundsdóttir, Vinnumálastofnun

 

 

Markaðssetning á samfélagsmiðlum – hvernig verðum við sýnileg?

Markaðssetning á samfélagsmiðlum er einföld og áhrifarík leið til að ná til hugsanlegs markhóps.  Hún gengur út á það að para saman fyrirtæki og neytendur sem hafa áhuga á vörunni eða að virkja þá sem fyrir eru og láta virði samskiptanna vaxa. Kynntar verða misvel heppnaðar tilraunir til markaðssetningar og þátttakendur gera stutt verkefni til að öðlast betri skilning á mikilvægi vel heppnaðar markaðssetningar á samfélagsmiðlum.

Umsjón: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi SSNV