Breytingar á tryggingarfé fyrir ferðaþjónustuaðila

Ráðherra ferðamála hefur gefið út reglugerð sem heimilar Ferðamálastofu að taka tillit til aðstæðna tryggingarskyldra aðila vegna Covid-19 faraldursins og áhrifa hans á íslensk ferðaþjónustufyrirtæki við útreikning tryggingafjárhæðar.  Er breytingin hugsuð til að styðja við ferðaþjónustuna á erfiðum tímum og veitir þeim aðilum sem undir tryggingaskyldu falla svigrúm til að bregðast við fjárhagslegum áföllum.

 

Nánari upplýsingar á heimasíðu ráðuneytisins.

 

Athugið að umsóknir ásamt fylgigöngum skulu berast ferðamálastofu fyrir 1. Apríl nk.