Alls bárust 109 umsóknir um styrki til Uppbyggingarsjóðs

Fimmtudaginn 22. nóv. sl. rann út umsóknarfrestur um styrki til Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra fyrir árið 2019. Alls bárust 109 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 185 milljónum kr. í styrki. Er þetta svipaður fjöldi umsókna og undanfarin ár. Til úthlutunar eru rúmar 60 milljónir kr.

Umsóknirnar fara nú til umfjöllunar hjá úthlutunarnefnd og fagráðum Uppbyggingarsjóðsins. Stefnt er að svörum um miðjan janúar 2019.