Áframhaldandi samstarf um stuðning við smáframleiðendur

SSNV og Vörusmiðja BioPol á Skagaströnd hafa gengið frá samstarfssamningi um áhersluverkefnið Matvælasvæðið Norðurland vestra. Verkefnið lýtur að áframhaldandi stuðningi við smáframleiðendur á starfssvæði samtakanna og er unnið í nánu samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra. Meðal þátta verkefnisins eru stuðningur við ýmiskonar námskeiðahald fyrir smáframleiðendur, sölubíl smáframleiðenda og vefverslun Vörusmiðjunnar. Einnig fellur undir verkefnið kynnisferð til Eldrimmer í Svíðþjóð en það svæði er framarlega hvað full- og heimavinnslu varðar.

 

Þetta er í þriðja skiptið sem áhersluverkefni hafa verið skilgreind sérstaklega til að styðja við smáframleiðendur á starfssvæði SSNV. Enda hafa slík verkefni skýra skírskotun í Sóknaráætlun landshlutans þar sem áhersla er lögð á fullvinnslu, sölu beint frá býli, virðisaukningu heima í héraði og stuðning við smáframleiðendur.

 

Nánar má lesa um sögu verkefnisins hér.

 

Vörusmiðja BioPol er vottað vinnslurými fyrir smáframleiðendur sem staðsett er á Skagaströnd. Þar hafa framleiðendur matvæla aðgang að aðstöðu til þróunar, nýsköpunar og framleiðslu á náttúrulegum mat- og heilsuvörum. Allur aðbúnaðar í Vörusmiðjunni uppfyllir kröfur um öryggi framleiðenda og heilnæmi framleiðsluvörunnar og er þar aðgengi að tækjum og tólum til framleiðslunnar auk stuðnings við þróun, markaðssetningu og sölu. Á heimasíðu Vörusmiðjunnar er vefverslun þar sem framleiðsluvörur smáframleiðendanna eru til sölu. Einnig heldur Vörusmiðjan úti sölubíl smáframleiðenda sem fer um Norðurland vestra í reglubundnum ferðum skv. leiðakerfi sem auðveldar íbúum að nálgast vörur framleiddar í héraði.