Að rata í frumkvöðlaumhverfinu á Norðurlandi vestra

Kolfinna Kristínardóttir ráðgjafi á sviði nýsköpunar hjá SSNV var gestur hjá RATA í frumkvöðlaspjalli á netinu í gær, fimmtudaginn 25. mars.

RATA er ráðgjafafyrirtæki sem eflir einstaklinga og teymi í átt að eigin árangri. Að rata í frumkvöðlaumhverfinu er mánaðarlegur viðburður og leiðarvísir um þann stuðning sem í boði er fyrir frumkvöðla. Stuðningsumhverfi nýsköpunar og frumkvöðla hér á landi getur við fyrstu sýn verið eins og hálfgerður frumskógur. Hvaða þjónusta er í boði, hvaða verkefni henta mér og hvernig get ég fjármagnað fyrirtækið mitt? Hver getur hitt mig og gefið mér ráð á fyrstu skrefunum? Hvernig stækka ég tengslanetið mitt?

Kolfinna ræddi um nýsköpunarumhverfið á Norðurlandi vestra og þann stuðning sem er í boði í landshlutanum. Einnig var vakin athygli á lausnarmótinu Hacking Norðurland.

Hægt er að horfa á kynninguna með því að smella hér.