Verslunin Hlíðarkaup
Verslunin Hlíðarkaup fagnar á árinu 2011 20 ára afmæli. Ásgeir Einarsson eigandi hefur frá upphafi staðið fyrir traustum rekstri og er verslunin þekkt fyrir góða og metnaðarfulla þjónustu.
Hlíðarkaup býður upp á fjölbreytt vöruúrval, heimsendingaþjónustu og
nýlega bætti fyrirtækið við myndbandaleigu. Samstarf við Ferðaþjónustuna á Hólum
leiddi af sér að nú rekur ferðaþjónustan litla verslun þar og hefur þjónusta við íbúa og
gesti á Hólastað styrkst mjög. Langur opnunartími hjá Hlíðarkaup leiðir
af sér hærra þjónustustig á Sauðárkróki og í næsta nágrenni.. Þjónustu- og verðkannanir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum sýna að verslunin er fyllilega samkeppnisfær. Verslunin hefur að undanförnu tekið þátt í verkefninu Retail in Rural Regions sem snýr að eflingu verslunar í dreifbýli og hefur náð prýðisgóðum árangri þar.
Verðlaunagripurinn 2011
Verðlaunagripurinn í ár er hannaður og unninn af Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni listamanni á Sauðárkróki.. Guðbrandur Ægir hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, gert tvo minnisvarða í Skagafirði og vinnur að þeim þriðja. Hann hefur skrifað tvö unglingaleikrit í fullri lengd og gert leikgerð við sögu Þórdísar spákonu fyrir Menningarfélagið Spákonuarf á Skagaströnd. Þá starfaði hann um tíma sem ljósahönnuður hjá Þjóðleikhúsinu.
Hvatningarverðlaun SSNV hafa áður verið veitt eftirtöldum aðilum:
Árið 2010 – Ferðaþjónustan á Brekkulæk í Miðfirði
Árið 2009 – Léttitækni ehf á Blönduósi
Árið 2008 – Sjávarleður hf á Sauðárkróki
Árið 2007 - Siglufjarðar Seigur – bátasmiðja.
Árið 2006 - Forsvar ehf á Hvammstanga.
Árið 2004 - Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Árið 2003 - Háskólinn á Hólum.
Árið 2002 - Síldarminjasafnið á Siglufirði.
Árið 2001 - Hestamiðstöðin Gauksmýri.
Árið 2000 - Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Árið 1999 - Kántrýbær á Skagaströnd.
Nánari upplýsingar um Hvatningarverðlaun SSNV veitir framkvæmdastjóri SSNV, Jón Óskar Pétursson í síma 455 2510. Netfang:
jon@ssnv.is.