Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar og fræðastarf á landsbyggðinni
27.5.2011 20:44:00 : Jón Óskar Pétursson
Tilefni ráðstefnunnar er skýrslan um Þekkingarsetur á Íslandi og nú er ætlunin að móta áframhald þess verkefnis m.a. í tengslum við áherslur Vísinda- og tækniráðs og sóknaráætlanir landshluta (Ísland 2020).
Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvægi og tækifæri þekkingar- og fræðastarfs á landsbyggðinni og tengsl þess við rannsókna- og háskólasamfélagið á höfuðborgarsvæðinu. Meðal viðfangsefna ráðstefnunnar er að skýra umfang og fjölbreytileika í starfsemi þekkingarsetra víða um land með áherslu á þau tækifæri sem þar liggja. Aukið samstarf þekkingarsetra bæði svæðisbundið og á landsvísu er líklegt til að skila auknum tækifærum til svæðisbundinnar þróunar á Íslandi.
Á ráðstefnunni verða 10 stuttir fyrirlestrar og umræður.