Hvatningarverðlaun SSNV atvinnuþróunar eru í senn viðurkenning fyrir góðan árangur og hvatning til áframhaldandi starfsemi viðkomandi fyrirtækis / einstaklings.
Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra.
Úr hópi margra verðugra hafa eftirtalin fyrirtæki verið tilnefnd til Hvatningarverðlaunanna árið 2011.
Feykir, héraðsfréttablað og vefmiðill – Héraðsfréttablaðið Feykir átti 30 ára útgáfuafmæli fyrr á þessu ári en fyrsta tölublað þess kom út 10. apríl 1981. Feykir er því í hópi elstu héraðsfréttamiðla landsins. Útbreiðslusvæði Feykis hefur aðallega verið í Skagafirði og Húnavatnssýslum en nokkuð stór hópur brottfluttra á suðvesturhorni landsins og víðar eru áskrifendur. Enn fleiri lesa fréttir og annað efni sem birt er á Feyki.is og eru „stóru“ miðlarnir duglegir að vakta hvað þar er að finna. Feykir gegnir mikilvægu hlutverki í því að miðla fréttum og upplýsingum af svæðinu og innan þess, auk þess sem héraðsfréttamiðlar skapa íbúunum umræðuvettvang. Héraðsfréttamiðlum er ætlað að spegla umhverfi sitt og samfélag en þeir hafa jafnframt dýrmætt heimildagildi.
Feykir hefur tekið ýmsum breytingum í gegnum tíðina bæði hvað varðar útlit og efnisval en ýmsir fastir liðir hafa lifað lengi eins og vísnaþáttur Guðmundar Valtýssonar ber vitni um, en þeir eru nú orðnir nær 560 talsins. Fyrstu árin kom Feykir út hálfsmánaðarlega en vikulega frá 1. apríl 1987. Vorið 2008 hófst undirbúningur að vefsíðu og föstudagskvöldið 26. september 2008 fór feykir.is í loftið.
Hlíðarkaup – Verslunin Hlíðarkaup á 20 ára afmæli á þessu ári. Eigendur hafa staðið fyrir traustum rekstri og er verslunin þekkt fyrir góða og metnaðarfulla þjónustu. Þannig býður Hlíðarkaup t.d. upp á fjölbreytt vöruúrval, heimsendingaþjónustu og vinnur á staðnum ýmsar þær kjötvörur og tilbúna rétti sem seldir eru í versluninni. Nýlega bætti fyrirtækið við myndbandaleigu. Samstarf við Ferðaþjónustuna á Hólum leiddi af sér að nú rekur ferðaþjónustan litla verslun þar og hefur þjónusta við íbúa og gesti á Hólastað styrkst mjög. Langur opnunartími hjá Hlíðarkaup á Sauðárkróki leiðir af sér hærra þjónustustig í nágrenninu. Þjónustu- og verðkannanir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum sýna að verslunin er fyllilega samkeppnisfær. Verslunin tekur þátt í verkefninu Retail in Rural Regions og hefur náð prýðisgóðum árangri þar.
Hótel Varmahlíð – Hótel Varmahlíð er gamalgróið fyrirtæki og á vefsíðu þess kemur fram að þar hafi verið stunduð greiðasala í 75 ár. Svanhildur Pálsdóttir tók við hótelstjórn í nóvemberlok 2005 en hefur verið eigandi frá febrúar 2006. Allt frá fyrstu tíð hefur hún og starfsfólk hennar lagt megináherslu á að byggja upp faglega og vandaða þjónustu en einkunnarorð hótelsins eru einmitt: ,,Góð þjónusta og gestrisni“. Hótel Varmahlíð hefur markað sér sérstöðu varðandi góðan mat úr héraði og ýmsa viðburði sem ekki bjóðast annars staðar. Þannig hefur hótelið haldið staðbundinni framleiðslu, menningu og sögu Skagafjarðar á lofti og í samstarfi við aðra og boðið m.a. viðburði svo sem hrossablót, Sturlungablót, sauðburðarhelgi og fleira. Hótel Varmahlíð er virkur þáttakandi í Matarkistunni Skagafjörður og fleiri samstarfsverkefnum. Þá hefur Svanhildur haft frumkvæði að samstarfi á vettvangi ferðaþjónustunnar innan héraðs og í landshlutanum og unnið mikið og gott starf í þeim efnum.
Kaupfélag Skagfirðinga – er eitt elsta kaupfélag á landinu, stofnað 1889. Kaupfélag Skagfirðinga er burðarás í atvinnulífi á Norðurlandi vestra. Félagið er umsvifamikið í frumgreinum, afurðavinnslu, verslunarrekstri, margs konar þjónustu og flutningum. Fyrirtækið heldur úti fjölþættri starfsemi og er stærsti atvinnurekandi á Norðurlandi vestra. Afkoma fyrirtækisins er góð, þrátt fyrir að rekstrarumhverfi fyrirtækja sé um margt erfitt í landinu um þessar mundir. Dótturfyrirtæki Kaupfélags Skagfirðinga eru Fisk Seafood, Fjölnet og Vörumiðlun en að auki á félagið hluti í öðrum fyrirtækjum innan ýmissa greina. Kaupfélag Skagfirðinga hefur um árabil verið öflugur bakhjarl, ýmissa menningar- , íþrótta- og samfélagslegra verkefna á svæðinu. Kaupfélag Skagfirðinga tekur einnig þátt í verkefninu Retail in Rural Regions, Matarkistan Skagafjörður og fleiri samstarfverkefnum.
Videosport (Kristín og Sigurpáll) - Kristín og Sigurpáll eru umsvifamiklir og drífandi frumkvöðlar sem hvert samfélag vildi gjarnan hafa innan sinna raða. Á þeirra höndum fer fram umsvifamikill rekstur á sviði veitinga- og afþreyingarþjónustu. Þau hófu fyrirtækjarekstur á Sauðárkróki með myndabandaleigu og nætursölu í leiguhúsnæði við Aðalgötuna á Sauðárkróki síðar festu þau kaup á annarri myndbandaleigu og sameinuðu svo starfsemina við starfsemi Skeljungs á Sauðárkróki. Þau eiga nú og reka Ólafshús, Mælifell og Kaffi Krók. En síðastnefnda staðinn endurbyggðu þau glæsilega eftir bruna. Setur húsið og umhverfi þess myndarlegan svip á elsta hluta bæjarins á Sauðárkróki. Sigurpáll er einnig tónlistarmaður og hljómborðsleikari í hljómsveitinni Von en Kristín og Sigurpáll hafa á umliðnum árum boðið Skagfirðingum og gestum fjölbreytt úrval viðburða og skemmtana, má þar nefna fjölmarga tónleika, dægurlagakeppni og þematengdar dagskrár, t.d. í Sæluviku. Kristín og Sigurpáll eru afar virk í ýmsum samfélagslegum verkefnum og stuðningi við þau, eiga t.d. hlut í Þreksporti og ríkan þátt í að þar var á sínum tíma sett á fót líkamsræktarstöð. Þá eru þau virkir þátttakendur í verkefninu Matarkistan Skagafjörður og eru einnig í hópi þeirra sem kanna nú möguleika á því að reisa hótelbyggingu á Sauðárkróki.
Gert er ráð fyrir því að ofangreind fyrirtæki kynni starfsemi sína á Degi atvinnulífsins 17. nóvember nk. og þá verður jafnframt boðið upp á áhugaverð innlegg frá öðrum gestum.
Hefð er fyrir því að verðlaunagripurinn sem veittur er vegna Hvatningaverðlauna SSNV atvinnuþróunar sé unninn af listamanni á svæðinu. Að þessu sinni er verðlaunagripurinn unninn af Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni, listamanni á Sauðárkróki. Guðbrandur Ægir starfar sem myndmennta- og leiklistakennari í Árskóla á Sauðárkróki auk þess sem hann á og rekur Sviðsljós ehf., lítið fyrirtæki sem tengist aðalega listum og listviðburðum. Guðbrandur Ægir hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, gert tvo minnisvarða í Skagafirði og vinnur að þeim þriðja. Hann hefur skrifað tvö unglingaleikrit í fullri lengd og gerti leikgerð við sögu Þórdísar spákonu fyrir Menningarfélagið Spákonuarf á Skagaströnd. Þá starfaði hann um tíma sem ljósahönnuður hjá Þjóðleikhúsinu og hefur hannað ótal lýsingar og sviðsmyndir fyrir leikrit og tónleika m.a. Bræðsluna, sem eru árlegir tónleikar á Borgafirði Eystri. Það verkefni hlaut Eyrarrósina árið 2010. Guðbrandur Ægir hefur hefur myndlistar-, kennara- og rafvirkjamenntun.