Vaxtarsamningur Norðurlands vestra endurnýjaður
2.11.2011 13:15:00 : Jón Óskar Pétursson
Markmið samningsins er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði SSNV atvinnuþróunar og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Áhersla skal vera á stærri og veigameiri samvinnuverkefni sem hafa það markmið að efla nýsköpun og þróun í atvinnulífi svæðisins.
Leiðir að þessu markmiði skulu m.a. vera:
· Efla samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana um þróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.
· Þróa áfram og efla klasasamstarf vaxtargreina svæðisins og efla svæðisbundna sérþekkingu á vel skilgreindum styrkleikasviðum.
· Fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfum og efla framboð á vörum og þjónustu.
· Stuðla að útflutningi vöru og þjónustu og gjaldeyrisskapandi starfsemi.
· Nýta möguleika sem skapast með aðild að alþjóðlegum verkefnum.
· Laða að alþjóðlega fjárfestingu og þekkingu.
Áhersla verður lögð á uppbyggingu klasa og framgang rannsókna og vöruþróunar á eftirfarandi sviðum:
· Ferðaþjónusta og menningartengd verkefni
· Auðlindalíftækni og uppbygging þekkingarsetra
· Matvæli
· Sameiginleg verkefni með öðrum vaxtarsamningum svo sem efling ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Áherslur og markmið geta tekið breytingum vegna stefnumótunar og samþættingu áætlana á grundvelli Ísland 2020.
Framlag Iðnaðarráðuneytisins verður 30 milljónir króna árlega á samningstímanum.
Upplýsingar varðandi umsóknir og úthlutun verða aðgengilegar fljótlega og verða þær kynntar sérstaklega.
Nánari upplýsingar veita Katrín María Andrésdóttir verkefnisstjóri SSNV atvinnuþróunar í síma 4556119 eða á netfangið kata@ssnv.is og Jón Óskar Pétursson framkvæmdsstjóri SSNV í síma 4552510 eða á netfangið jon@ssnv.is