Verkefnið um Huggulegt haust senn að renna sitt skeið
13.10.2011 14:24:00 : Gudrun Kloes
Kynningarátakið er samstarfsverkefni SSNV Atvinnuþróunar, Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra, ferðaþjónustuaðila og safna og setra á svæðinu.
Dagskrá undir merkjum kynningarátaksins hófst 1. september síðastliðinn en síðustu viðburðirnir sem tileinkaðir eru ,,Huggulegu hausti“ fara fram næstkomandi laugardag, 15. október. Þá verður haldin sviðamessa í Hamarsbúð á Vatnsnesi og eru enn örfá sæti laus. Hrossablót verður haldið á Hótel Varmahlíð og er uppselt á þann viðburð.
Liður í Huggulegu hausti var Söguleg safnahelgi sem fram fór um síðustu helgi. Flestir forstöðumenn safna og setra sem tóku þátt í Sögulegri safnahelgi með opnun og viðburðum eru ánægðir með aðsókn og telja að endurtaka eigi þennan viðburð að ári. Margir gestir fóru á milli staða og skoðuðu söfn og setur. Sumir höfðu á orði að þeir hefðu jafnvel aldrei heimsóttviðkomandi stað áður eða ekki litið inn í langan tíma. Töldu gestir því almennt að safnahelgi að hausti væri kjörið tækifæri til að kynna heimafólki þjónustu safna og setra.
Í tengslum við Huggulegt haust var gefinn út bæklingur sem innihélt einnig svokallað safnakort. Þáfengu gestir stimpil í safnakortið hjá þeim stöðum sem þeir heimsóttu á Sögulegri safnahelgi. Þeir sem fengu fjóra eða fleiri stimpla gátu tekið þátt í happdrætti og innan skamms verða nöfn vinningshafa birt á vefsíðu verkefnisins: www.huggulegthaust.is
Aðstandendur verkefnisins munu á næstu vikum leggja mat á árangur þess og mun þá væntanlega ráðast hvort framhald verður á samstarfi um Huggulegt haust að ári liðnu.