Breytt fyrirkomulag úthlutana á safnliðum í fjárlögum
19.9.2011 14:39:00 : Jón Óskar Pétursson
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.
Umsóknarfrestur er til 2. desember og úthlutað er einu sinni á ári eða eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
Verkefni eftir ráðuneytum:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.
Stuðningur við áhugahópa og fagleg starf.
Veittir eru styrkir til að styðja við aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
Velferðarráðuneyti.
Styrkir til félagasamtaka.
Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
Verkefnastyrkir á sviði velferðarmála.
Veittir eru styrkir til félagasamtaka til að hrinda í framkvæmd verkefnum og aðgerðum sem falla að verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
Umhverfisráðuneyti.
Verkefnastyrkir á sviði umhverfismála.
Veittir eru styrkir til faglegrar uppbyggingar á sviði umhverfismála með því að styrkja tiltekin verkefni. Einnig eru veittir styrkir sem stuðla að þátttöku í stefnumarkandi alþjóðlegum ráðstefnum og fundum um umhverfismál, einkum þeim sem ráðuneytið sjálft hefur aðkomu að. Ráðuneytið mun á árinu 2012 leggja áherslu á verkefni á sviði umhverfis- og náttúruverndar.
Styrkir til frjálsra félagasamtaka.
Veittir eru rekstrarstyrkir til frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfismála og til að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfismál og til að efla almenna vitund um gildi umhverfis- og náttúruverndar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Styrkir á sviði listgreina.
Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og eru ekki aðilar að menningarsamningum né hafa aðgang að sjóðum.
Styrkir á sviði menningararfs.
Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa að varðveislu menningarminja og eru ekki aðilar að menningarsamningum né hafa aðgang að sjóðum.
Styrkir á sviði íþrótta- og æskulýðsmála.
Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa við íþrótta- og æskulýðsmál, skólabúðir o.fl., og hafa ekki aðgang að sjóðum á þessu sviði.
Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða.
Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.
Nánari upplýsingar, reglur um úthlutun og umsóknareyðublað er að finna á vef viðkomandi ráðuneytis.