Tilkynningar

 

 

 

 

 

 

 

 

Fréttir

Íbúakönnun um viðhorf til sameininga sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
9.9.2011 08:37:00 : Jón Óskar Pétursson

Tekið var lagskipt 800 manna úrtak meðal íbúa 18 ára og eldri í Bæjarhreppi, Húnaþingi vestra, Húnavatnshreppi, Blöndósbæ, Sveitarfélaginu Skagaströnd, kagabyggð, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi. Símakönnun var framkvæmd á tímabilinu 17. – 24. maí 2011. Alls náðist í 726 manns eða tæp 91% úrtaksins. Það voru 829 manns sem samþykktu að taka þátt í könnuninni (73% þeirra sem náðist í) og 197 manns neituðu þátttöku (27% þeirra sem náiðst í).

 

 

Um 54% þátttakenda er almennt hlynntir því að sveitarfélagið þeirra sameinist öðru eða öðrum sveitarfélögum. 61 þátttakandi tók ekki afstöðu til þess hvort hann væri hlynntur eða andvígur sameiningu og taldi að það færi allt eftir því um hvernig sameiningu yrði að ræða.

 

Þátttakendur voru einnig spurðir útí ýmislegt er varðar þjónustu sveitarfélagana og sýna niðurstöður að íbúar eru almennt ánægðir með þá þjónustu sem sveitarfélögin á Norðurlandi vestra veita íbúum.

Skýrsluna á heild má nálgast hér