Norðurland vestra eitt stjórnsýslu- og þjónustusvæði
Við setningu þingsins lagði Bjarni Jónsson, formaður SSNV, áherslu á að með sameiginlegri baráttu sveitarstjórna hefði tekist að verja stöðu landshlutans á mörgum sviðum þó einstaka orrustur hafi tapast. Frekari viðurkenning á landshlutanum sem eins stjórnsýslu- og þjónustusvæðis í áætlunum stjórnvalda sé m.a. einn af sigrunum sem unnist hefur.
Bjarni lagði áherslu á að efling sveitarstjórnarstigsins fælist ekki einungis í sameiningu sveitarfélaga heldur og ekki síður í auknu samstarfi um grunngerð þeirrar þjónustu sem þau veita og að koma fram sem sameiginlegt afl gagnvart hagsmunum svæðisins. Sem dæmi um vel heppnaða samvinnu nefndi hann Byggðasamlag um málefni fatlaðra og Heilbrigðiseftirlit NV sem starfað hafa um árabil.
Þá sagði Bjarni samstarf við samgönguyfirvöld um framkvæmd og eflingu almenningssamgangna vera áhugavert verkefni og þar væri eitt helsta markmiðið að tengja enn betur saman byggðakjarna í landshlutanum og þannig treysta hann sem eitt atvinnu- og þjónustusvæði.
Núverandi skipun sveitarfélaga á Norðurlandi vestra ekki til frambúðar
Stefán Vagn Stefánsson, formaður starfshóps SSNV um sameiningar sveitarfélaga, gerði grein fyrir starfsemi starfshópsins. Hann sagði það skoðun starfshópsins að sameiningar ættu að koma innanfrá en ekki að ofan. Gerð hefur verið könnun um vilja heimamanna til sameiningar og liggja niðurstöður hennar fyrir.
Stefán sagði það sem sína skoðun að núverandi skipun sveitarfélaga á svæðinu verði ekki til frambúðar og muni kalla á sameiningar í framtíðinni. En næsta verkefni starfshópsins væri að fara yfir niðurstöður könnunarinnar og ákveða framhaldið.
Einnig kynnti Þorleifur Gunnlaugsson, formaður nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins, helstu atriði í vinnu nefndarinnar og hvað framundan væri. Þá fór Hjördís Sigursteinsdóttir sérfræðingur RHA yfir helstu niðurstöður könnunarinnar.
Hlutskipti sveitarstjórnarmanna og ríkisstjórnar áþekkt
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra taldi hlutskipti
sveitarstjórnarmanna og ríkisstjórnarliða vera áþekkt, minnkandi tekjur en aukinn kostnaður og því mætt með niðurskurði og auknum gjöldum. Hann sagði að stefna bæri að því að til verði öflug og stór sveitarfélög en grunnur þeirra væri lýðræðislegur vilji íbúanna til sameiningar, ekki valdboð að ofan. Fyrir alþingi lægi nýtt frumvarp til sveitarstjórnarmanna og brýnt væri að afgreiða það til að auka megi íbúalýðræði og styrkja fjármálastjórn sveitarfélaga.
Varðandi vegstæði þjóðvegar 1 um A-Hún. ítrekaði ráðherra að hlusta þyrfti á heimamenn og hafa vilja þeirra, umhverfisvernd og fjárráð ríkisins í fyrirrúmi.
Standa þarf vörð um sjávarútveg og landbúnað
Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra sagði málaflokka ráðuneytisins fyrirferðamikla á Norðurlandi vestra og standa þyrfti vörð um þá á niðurskurðartímum. Einnig væri mikilvægt að standa vörð um þær stofnanir á svæðinu sem fyrir eru.
Þá lagði ráðherra áherslu á samfélagslega ábyrgð varðandi breytingar á lögum um fiskveiðistjórnun og ætlunin væri að hluti hækkaðs veiðigjalds renni til sjávarbyggða. Lýsti hann eftir afstöðu og stuðningi fundarmanna vegna þessa.
Endurskipuleggja þarf samfélagið, auka tekjur og minnka útgjöld
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra benti á að um 45% af
fjárlögum ríkisins heyrði undir velferðarráðuneytið og skjólstæðingar þess væru um 45 þúsund. Þar væri stærsta verkefnið að koma atvinnuleitendum til vinnu. Hann sagði það blasa við að endurskipuleggja þyrfti samfélagið, auka tekjur og minnka útgjöld, en jafnframt standa vörð um góða grunnþjónustu.
Í undirbúningi er yfirfærsla málefna aldraðra frá ríki til sveitarfélaga, væntanlega 3013 eða 2014 og þá eru tillögur Norðlendinga varðandi heildarskipulag heilbrigðisþjónustu til skoðunar í ráðuneytinu.
Nýir kjarasamningar dýrir fyrir sveitarfélögin
Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sagði ljóst að nýsamþykktir kjarasamningar væru dýrir fyrir sveitarfélögin þó ekki væri búið að fullreikna áhrif þeirra. Hann sagði flesta þætti við yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hafa gengið vel en óljóst væri enn hvort tekjur dygðu fyrir gjöldum.
Almenningssamgöngur á Norðurlandi vestra
Smári Ólafsson, verkfræðingur VSÓ, ræddi yfirfærslu á flutningi almenningssamgangna frá ríki til sveitarfélaga og kynnti hugmyndir sínar um breytt fyrirkomulag á Norðurlandi vestra.
Sóknaráætlun landshluta
Að undanförnu hefur töluvert verið unnið að sóknaráætlun landshlutans í tengslum við stefnu ríkisstjórnarinnar – Ísland 20/20. Á þinginu var þingfulltrúum skipað í hópa og ræddu þeir fjölmörg atriði í því sambandi, s.s. samgöngu- og fjarskiptamál, velferðar- og menntamál og atvinnu- og menningarmál. Niðurstöður þeirra umræðna munu nýtast við áframhaldandi vinnu við sóknaráætlunina.
Ítarlegar samþykktir um fjölmörg hagsmunamál Norðurlands vestra
Á ársþinginu voru samþykktar fjölmargar ályktanir er snerta hagsmunamál svæðisins.