Millilandaflug til Norðurlands - undirbúningshópur fundar á Akureyri
10.6.2011 10:22:00 : Gudrun Kloes
Markmið með verkefninu er m.a. að bjóða nýjan áfangastað fyrir ferðafólk í flugi til Íslands, koma á reglulegu millilandaflugi til Norðurlands í gegnum Akureyri, fjölga ferðamönnum sem koma til Norðurlands og stuðla að lengri dvöl þeirra á svæðinu. Jafnframt er einnig hugað að því að fram fari markviss þróun á vörum og þjónustu við ferðamenn.
5. fundur undirbúningshópsins var haldinn 8. júní sl.Verkefnisstjórinn Arnheiður Jóhannsdóttir kynnti stöðu og horfur en Guðný Jóhannsdóttir frá Ísavia kynnti niðurstöður sínar frá Routes ráðstefnunni sem haldin var á Ítalíu í maí sl. Þar komu saman fulltrúar flughafna og flugfélaga. Að lokinni ráðstefnunni sagðist Guðný finna fyrir miklum áhuga á nýjum og e.t.v. öðruvísi áfangastöðum.
Í undirbúningshópnum sitja fulltrúar Norðurlands vestra, Eyjafjarðarsvæðis og Norðurlands eystra, en fulltrúar frá SSNV atvinnuþróun hafa tekið virkan þátt í samstarfinu og setið alla fundi frá upphafi.
Í feb. síðastliðnum var haldið málþing á Akureyri þar sem reynsla t.d. Finna af beinu flugi á litla og áður óþekkta staði var kynnt, auk þess sem unnið var að því að skilgreina ímynd Norðurlands betur með tilliti til markaðssetningar. Fyrstu drög úrvinnslu þess starfs liggja nú fyrir. Þrátt fyrir að enn eigi eftir að vinna nánar úr gögnunum liggur fyrir að þau helstu hugtök sem unnið verður með áfram eru: Kyrrð, orka, töfrar.
Heimasíða um Akureyrarflugvöll er í smíðum og mun væntanlega nýtast verkefninu afar vel. Ljóst er að eftir miklu getur verið að slægjast fyrir Norðlendinga að fá til sín ferðamenn með beinu flugi. Þannig sýna athuganir sem gerðar hafa verið af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri að meðaldvalartími erlendra ferðamanna á Norðurlandi eru 7,3 nætur ef lent er á Akureyri en 1,8 nætur ef lent er í Keflavík.