22. febrúar 2012
..:: Vaxtarsamningur ::..

 

  
  

 Vaxtarsamningur
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra er samningur milli Iðnaðarráðuneytisins og SSNV. Markmið samningsins eru að er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. 
Leiðir að þessu markmiði skulu m.a. vera að:
1. Efla samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana um þróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.
2. Þróa áfram og efla klasasamstarf vaxtargreina svæðisins og efla svæðisbundna sérþekkingu á vel skilgreindum styrkleikasviðum.
3. Fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfum og efla framboð á vörum og þjónustu.
4. Stuðla að útflutningi vöru og þjónustu og gjaldeyrisskapandi starfsemi.
5. Nýta möguleika sem skapast með aðild að alþjóðlegum verkefnum.
6. Laða að alþjóðlega fjárfestingu og þekkingu.
Áherslur og sértæk markmið 
Áhersla er lögð á stærri og veigameiri samvinnuverkefni sem hafa það markmið að efla framgang rannsókna og vöruþróunar, nýsköpun og þróun í atvinnulífi svæðisins sem og uppbyggingu klasa.
Sérstaklega er horft til verkefna á eftirfarandi sviðum:
1. Ferðaþjónusta og menningartengd verkefni.
2. Auðlindalíftækni og uppbygging þekkingarsetra.
3. Matvæli.
4. Sameiginleg verkefni með öðrum vaxtarsamningum, svo sem efling ferðaþjónustu á Norðurlandi.


Lögð er áhersla á að vaxtarsamningur nýtist einkum atvinnulífi og fyrirtækjum á svæðinu og efli verkefni á vettvangi þeirra. Ekki er ætlast til þess að fjármunir frá ríkinu sem lagðir eru til vaxtarsamnings renni beint til ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja í gegn um verkefni vaxtarsamnings. Hins vegar er afar æskilegt að fyrirtæki sem sækja um til vaxtarsamnings eigi markvisst samstarf við stofnanir, félög, einkaaðila og aðra þá sem við á í hverju tilfelli. Getur þá orðið samkomulag um að hluti stuðningsins renni frá umsækjanda til samstarfsaðila í samræmi við framgang verkefnisins. 




Stjórnsýsla-verkefnisstjórn
Rekstur samningsins og dagleg umsýsla er í höndum SSNV atvinnuþróunar. SSNV atvinnuþróun vinnur úr styrkumsóknum og gerir tillögu að styrkhæfum verkefnum og ber undir verkefnastjórn til samþykktar.  
 Samkvæmt ákvæðum samningsins skipar Iðnaðarráðherra verkefnisstjórn. Hlutverk verkefnisstjórnar er að yfirfara umsóknir gerir tillögur um útfærslu markmiða hans og og þeirra leiða sem áætlanir og val verkefna skulu byggja á.  
Verkefnisstjórn skipa:
Guðrún Helgadóttir formaður
Einar Kolbeinsson
Marteinn Jónsson
Guðný Helga Björnsdóttir
Selma Dögg Sigurjónsdóttir


Verkefnisstjóri er Katrín María Andrésdóttir starfsmaður SSNV atvinnuþróunar Faxatorgi 1 550 Sauðárkrókur s:455 6119 t.póstur kata(hja)ssnv.is



  

@ Allur réttur áskilinn
 
  Login