Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Þingið skal halda fyrir lok
aprílmánaðar ár hvert. Á kosningaári sveitarstjórna skal þó halda ársþing eins fljótt og við
verður komið eftir kosningar, þó eigi síðar en 31. ágúst. Ársþing hverju sinni ákveður
næsta þingstað og skulu þing haldin sem víðast á starfssvæðinu.
Á ársþingi SSNV og aukaþingum eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum,
framkvæmdastjórum og lykilstarfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og
tengdra verkefna á Norðurlandi vestra.
Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi
samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti.
Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að
ávarpa þingið.