10. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
júl.20
Niðurstöður rannsókna á ferðamennsku á Kili
20.7.2010 09:51:00 by Gudrun Kloes

Landnýtingaráætlun hefur það að markmiði að hálendið nýtist sem best til sem fjölbreytilegastrar útivistar og ferðamennsku án þess að gengið sé á auðlindina. Slík áætlun byggir á rannsóknum á þolmörkum ferðamennsku, annars vegar með hliðsjón af upplifun ferðamanna og hins vegar með hliðsjón af hvers konar ferðamennsku umhverfið þolir og hentar til. “Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvers konar ferðamennska er stunduð á Kili á sumrin, hvernig ferðamenn upplifa ferðalag sitt um Kjöl og hvers konar uppbyggingu þeir telja æskilega,” segir Anna Dóra Sæþórsdóttir m.a. í inngangi, en hún stýrði rannsókninni.

Sem fyrr segir eru skýrslurnar þrjár talsins og allar á PDF-formi.

Í skýrslunni Kafað ofan í kjölinn á viðhorfum ferðamanna á Kili eru birtar niðurstöður þeim hluta verkefnisins  sem snýr að upplifun ferðamanna á Kili.

Í annari skýrslu er töluleg greining á viðhorfum ferðamanna á Kili.

Í þriðju skýrslunni er síðan að finna greiningu á viðtölum við ferðamenn á Kili.

 

 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning