10. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
mar.25
Rammaáætlun - Kynningarfundur á Norðurlandi vestra
25.3.2010 08:14:00 by Jón Óskar Pétursson

Í ársbyrjun 2008 setti stjórnin á laggirnar fjóra faghópa til að metamögulega virkjunarkosti og verðmæti þeirra svæða sem verða fyrir áhrifum af framkvæmdum.Faghóparnir hafa nú lokið störfum og verða niðurstöður þeirra lagðar fram í opnu kynningar- og umsagnarferli sem standa mun til 19. apríl. Verkefnisstjórn boðar til opins kynningarfundar á  Hótel Varmahlíð í Skagafirði þriðjudaginn 30. Mars kl. 16:00 um niðurstöður

 
Á fundnum verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti , hver á sínu sérsviði. Í kjölfar kynninga verða umæður og fyrirspurnum svarað.
Verkefnisstjórn hefur gefið út skýrslu með kynningu á þeim
virkjunarkostum/svæðum sem til umfjöllunar eru ásamt lýsingu á starfi,aðferðafræði og niðurstöðum faghópanna sem metið hafa svæðin og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Skýrslan ásamt margs konar gögnum liggur frammi á vefsíðu rammaáætlunar,
 
 
 
Nú er leitað eftir athugasemdum og ábendingum um þessar niðurstöður faghópanna.
 
Öllum er heimilt að senda inn umsögn um niðurstöður faghópanna,
en tímafrestur til þess er til 19. apríl nk. Umsagnir skal senda inn í
tölvupósti á netfangið umsogn@rammaaaetlun.is
en einnig má senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Fyrirspurnir má senda á sama netfang.
Niðurstöður faghópa er ekki loka niðurstaða 2. áfanga rammaáætlunar. Að loknu umsóknarferlinu mun verkefnisstjórn nýta niðurstöður faghópanna og hafa umsagnir til hliðsjónar við að setja saman heildarniðurstöður áætlunarinnar og senda þær stjórnvöldum.
Nánari upplýsinga gefur starfsmaður verkefnisstjórnar, Tómas Þór Tómasson,
gsm 860-8098; netfang: tomast@unak.is.
 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning