30. júlí 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
feb.16
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum
16.2.2010 16:41:00 by Katrín María Andrésdóttir

 

Eingöngu koma til greina verkefni sem unnin eru í samstarfi tveggja eða fleiri aðila.  Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða til reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana, auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.

Styrkur getur að hámarki numið 60% af heildarkostnaði við hvert einstakt verkefni.

Nánar um forgangsflokka verkefna:

Menntun og rannsóknir

Einkum koma til greina hagnýt rannsóknarverkefni sem tengjast

*  Bættri nýtingu afurða úr landbúnaði og sjávarútvegi á Norðurlandi vestra, ekki síst með tilliti til sjálfbærni, umhverfisverndar og auðlindalíftækni

*  Uppbyggingu þekkingar og eflingu þekkingarsetra á Norðurlandi vestra

Ferðaþjónusta og menning

Til greina koma verkefni er stuðla að eflingu ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra, einkum á sviði

*  sagnaarfsins

*  íslenska hestsins

*  náttúru og umhverfis

*  handverks

Vaxtarsamningi Norðurlands vestra er ætlað að stuðla að uppbyggingu klasa á áðurtöldum sviðum.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér þau verkefni sem þegar hafa hlotið styrki á vegum samningsins, með þéttingu samstarfsnets fyrir augum.

Umsóknareyðublöð má finna á slóðinni:  http://www.vnv.is/index.php?option=com_phocadownload&view=category&id=2&Itemid=10

Nánari upplýsingar veitir Hjördís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Norðurlands vestra í síma 455 7931, netfang:  hjordis.gisladottir@ssnv.is

 

 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning