10. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
jan.20
Handverk og heima(n)sala
20.1.2010 10:03:00 by Katrín María Andrésdóttir

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, SSNV atvinnuþróun og Matarkistan Skagafjörður boða til kynningarfundar um möguleika í vefverslun og beinni sölu á handverki og afurðum, sem og í matarferðaþjónustu.

Fundurinn verður haldinn á Hótel Blönduósi, fimmtudaginn 28. janúar nk. og hefst kl. 13:00.

Dagskrá:

Fundasetning

Beint frá býli, félag bænda sem stunda eða hyggjast stunda sölu afurða beint frá býli.  Árni Snæbjörnsson, verkefnisstjóri BFB kynnir félagið og starfsemi þess.  Nánar: www.beintfrabyli.is

Litlu búðirnar, vefverslun með íslenskt handverk og náttúruvörur.  Áskell Þórisson, umsjónarmaður og hugmyndasmiður verkefnisins kynnir vefinn, möguleikana sem í honum felast og forsendur fyrir þátttöku.  Nánar:  www.litlubudirnar.is

Matarkistan Skagafjörður, þróunarverkefni í matarferðaþjónustu.  Guðrún Brynleifsdóttir, verkefnisstjóri kynnir verkefnið.

Beint frá býli, nýr söluvefur félagsins.  Guðmundur J. Guðmundsson, stjórnarmaður í BFB, kynnir nýjan söluvef félagsins.

Endurmenntunarmöguleikar við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.  Áskell Þórisson, útgáfu- og kynningarstjóri LbhÍ, segir stuttlega frá þeim námskeiðum sem skólinn býður upp á og tengjast þessu sviði.  Nánar:  www.lbhi.is

Umræður og fyrirspurnir

Fundarstjóri Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi SSNV

Allt áhugafólk á Norðurlandi vestra velkomið.

 

 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning