8. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
jan.6
Áherslur og umsóknarfrestir Norræna menningarsjóðsins árið 2010
6.1.2010 09:47:00 by Katrín María Andrésdóttir

Norræni menningarsjóðurinn styrkir norrænt lista- og menningarsamstarf, fagfóks sem leikmanna:

*  verkefni fyrir og með börnum og unglingum

*  verkefni með áherslu á aukna þekkingu á mismunandi tungumálum Norðurlandanna og þýðingu tungumálsins við að varðveita menningu

*  verkefni sem hvetja til þátttöku nýrra Norðurlandabúa í norrænu menningarsamstarfi

*  verkefni sem unnin eru á fámennum svæðum á Norðurlöndum

*  verkefni sem hvetja til samstarfs á milli vestnorrænu landanna (Færeyja, Grænlands og Íslands) og hinna Norðurlandanna

 

Umsóknarfrestir 2010

1.  Fyrir umsóknir til og með 100.000 DKK eru fimm umsóknarfrestir árið 2010:

Umsóknarfrestur:                          Afgreiðsla:

1. febrúar                                     Í síðasta lagi 6. apríl

1. mars                                        Í síðasta lagi 6. maí

1. apríl                                         Í síðasta lagi 8. júní

1. september                                 Í síðasta lagi 5. nóvember

1. október                                     Í síðasta lagi 9. desember

 

2.  Fyrir umsóknir hærri en 100.000 DKK eru tveir umsóknarfrestir  árið 2010:

Umsóknarfrestur:                           Afgreiðsla:

1. febrúar                                      12. maí

1. september                                   1. desember

Sjóðurinn styrkir ekki verkefni sem þegar eru hafin (áður en sjóðurinn hefur afgreitt umsókn).

Þátttaka ,, nýrra Norðurlandabúa" í norræna menningarstarfinu fær meira vægi árið 2010.

Sjóðurinn metur verkefni sem ,,norrænt" ef að minnsta kosti þrjú norræn lönd/sjálfsstjórnarsvæði vinna að því sem þátttakendur, umsjónaraðilar eða eru þema verkefnisins.

Stjórn sjóðsins ákvað á fundi sínum í Kaupmannahöfn 26. - 27. nóvember sl. að sjóðurinn gæti til reynslu í eitt ár, fellt niður kröfu um þriggja landa samstarf, ef sótt er um styrk til verkefnis sem eflir þátttöku nýrra Norðurlandabua í norræna menningarsamstarfinu.  Ákvörðunin þýðir að Norræni menningarsjóðurinn getur, að verkefnamati loknu, veitt styrk innan þessa ákveðna áhersluþáttar til tvíhliða verkefna þ.e.a.s. samstarfsverkefna á milli tveggja landa/svæða.

Heimasíða sjóðsins: www.nordiskkulturfond.org

 

 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning