|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| des.17 |
Styrkir til að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ADHD greiningu og fjölsk
17.12.2009 01:37:00 by Jón Óskar Pétursson |
Styrkhæf verkefni eru:
•I. Verkefni sem fela í sér félagslega stuðningsþjónustu, svo sem liðveislu fyrir langveik börn og börn með ADHD, og skammtímavistun til samræmis við það sem fötluð börn eiga kosta á, sbr. lög um málefni fatlaðra, nr. 59/1992. •II. Verkefni sem hafa það markmið að gera langveikum börnum á leik- og grunnskólaaldri kleift að fá sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og/eða talþjálfun í skólum sínum þegar fagleg rök mæla með því. •III. Verkefni sem fela í sér faglega leiðsögn sérfræðinga fyrir langveik börn á leik- og grunnskólaaldri sem ekki geta sótt skóla heilsu sinnar vegna. •IV. Verkefni sem fela í sér fræðslu og/eða stuðning fyrir kennara og annað starfsfólk skóla vegna nemenda með ADHD. •V. Verkefni sem miða að bættri þjónustu leik- og grunnskóla við börn með ADHD. •VI. Önnur verkefni sem lögð er áhersla á í skýrslum tveggja starfshópa frá febrúar og apríl 2008 um þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest og enn fremur áliti rýnihópa sem forgangsröðuðu tillögum starfshópanna. Gert er ráð fyrir að þeim verkefnum sem hljóta styrk að þessu sinni ljúki fyrir 1. júlí 2011.
Styrkveiting er ákveðin á grundvelli umsóknar og verður við mat á umsóknum lögð megináhersla á að viðkomandi verkefni feli í sér, með beinum hætti, þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
Sveitarfélög sem hljóta styrk leggja fram vinnu við skipulagningu og framkvæmd verkefnis. Í því felst almennur stjórnunarkostnaður, svo sem kostnaður við skrifstofuaðstöðu, kostnaður við ráðningu og verkstjórn og kostnaður við skipulagningu og samþættingu við starfsemi í grunnskólum, leikskólum eða öðrum stofnunum á vegum sveitarfélagsins. Enn fremur er innifalinn kostnaður við eftirlit og eftirfylgni verkefnis, uppgjör og skýrslugerð auk kostnaðar vegna húsnæðis þar sem það á við.
Umsóknir frá sveitarstjórnum eiga að berast félags- og tryggingamálaráðuneytinu í síðasta lagi föstudaginn 15. janúar 2010, á umsóknareyðublaði sem nálgast má hér. Nánari upplýsingar veitir Björn Sigurbjörnsson, sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu, bjorn.sigurbjornsson@fel.stjr.is.
Umsóknareyðublað um styrk vegna ADHD.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Innskráning
|
|