8. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
nóv.26
Það þarf þrautseigju og þolinmæði
26.11.2009 04:12:00 by Jón Óskar Pétursson

Þessir fundir voru liður í alþjóðlegri athafnaviku en tilgangurinn var m.a. að benda á að allir geta lagt hönd á plóg við að færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins. Einnig var markmiðið að koma af stað öflugri hugmyndavinnu þar sem unnið væri með tækifæri og möguleika á svæðinu.

Dagskrá fundanna var á þann veg að fyrst var kynning á þeim þáttum sem einkenna frumkvöðla og þar voru nefnd orð eins og - eldmóður – orka – trú á sjálfum sér og jákvæð hugsun. Eftir það var þátttakendum skipt í hópa þar sem unnið var með þær hugmyndir sem fram komu.
Reynslusaga frumkvöðuls var næst á dagskrá og þar fræddu Kristján Blöndal, Kjalfelli á Blönduósi, Jóhann Albertsson, Sveitasetrinu Gauksmýri og Hanna Þrúður Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Dýrakotsnammis á Sauðárkróki, viðstadda um reynslu þeirra af því að stofna og reka fyrirtæki.  
Í lok fundar kynntu fundarboðendur þá þjónustu og möguleika sem felast í þeirra störfum en allir sinna þeir aðstoð við frumkvöðla á Norðurlandi vestra og aðra þá sem vilja vinna með sínar hugmyndir. Alls mættu um 40 manns á þessa fundi sem haldnir voru á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Eftirtaldir aðilar stóðu að fundunum:
Vinnumálstofnun - Atvinnumál kvenna, SSNV atvinnuþróun, Nýsköpunarmiðstöð, Byggðastofnun, Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, Menningarráð Norðurlands vestra, Virkja- Norðvestur konur
 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning