10. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
nóv.12
Norðurljós - kveikjum á perunni!
12.11.2009 04:00:00 by Katrín María Andrésdóttir

Í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku 16. – 22. nóvember n.k. hefur verið ákveðið að bjóða til opinna funda á Norðurlandi vestra. Líkt og norðurljósin varpa birtu á dimmum vetrarkvöldum er ætlunin að lýsa upp skammdegið með öflugri hugmyndavinnu þar sem unnið verður með tækifæri og möguleika á svæðinu.

Fundarstaðir:

Mælifell, Sauðárkróki, þriðjudaginn 17. nóvember

Félagsheimilið Blönduósi, miðvikudaginn 18. nóvember

Café síróp, Hvammstanga, fimmtudaginn 19. nóvember

Dagskrá:

Kl. 11:00 - Kveikt á perunni - Stutt erindi um hugmyndir og vöruþróun

Kl. 11:15 - Hugmyndasmiðja

Kl. 12:15 - Léttur hádegisverður

Kl. 12:30 - Af fenginni reynslu - Reynslusaga frumkvöðuls

Kl. 13:00 - Hugmyndir og hvað svo?  - Unnið með hugmyndir og næstu skref

Kl. 14:00 - Dagskrárlok

Allir velkomnir án endurgjalds.

Að fundunum standa:

Atvinnumál kvenna - Vinnumálastofnun, Byggðastofnun, Menningarráð Norðurlands vestra, Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra, SSNV-Atvinnuþróun, Vaxtarsamningur Norðurlands vestra og Virkja - Norðvesturkonur

 

 

 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning