10. september 2010
..:: Skrá fréttir ::..

 

 

 Fréttir
okt.6
Leonardo tengslaráðstefna í Reykjavík 22. – 24. október
6.10.2009 10:25:00 by Gudrun Kloes
Á ráðstefnunni verður fjallað um starfsmenntun á sviði tæknigreina; áhersla verður lögð á samstarf atvinnulífs og skóla og verkefni sem miða að innleiðingu umhverfisvænna aðferða í starfsmenntun. Lögð verður sérstök áhersla á þróun Leonardo mannaskipta- og samstarfsverkefna og á þessari ráðstefnu verða þeir verkefnaflokkar kynntir sérstaklega. Markhópur ráðstefnunnar eru fulltrúar starfsmenntaskóla og annarra fræðslustofnana í starfsmenntun. Einnig fulltrúar starfsgreinaráða, samtaka atvinnulífs, fyrirtækja, fagfélaga og launþega.

Ráðstefnan er samvinnuverkefni Landsskrifstofa Leonardó á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum en þátttakendur koma víðsvegar að úr Evrópu. Næstu umsóknarfrestir Leonardo starfsmenntaáætlunarinnar eru í febrúar 2010 og þessi tími því tilvalin til þess að hefja undirbúning að umsóknum.

Upplýsingar um ráðstefnuna og skráningarform eru á heimasíðu Leonardo www.leonardo.is bein slóð; http://www.leonardo.hi.is/page/leo_contactseminar09

Núna hafa fjöldi erlendra þátttakenda skráð sig og eru áhugsamir Íslendingar hvattir til að skrá sig sem allra fyrst.
 Print   

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning